Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
19. febrúar 2026
Krónan hefur hlotið endurvottun Svansins, norræna umhverfismerkisins, til næstu þriggja ára og er áfram eina matvöruverslun landsins með vottunina og ein af þremur á Norðurlöndum. Vottunin var fyrst veitt tveimur verslunum Krónunnar árið 2019 og ári síðar náði hún yfir alla matvörukeðjuna. Við endurvottunina voru kröfur Svansins hertar verulega, einkum um orkunotkun, losun, úrgang og innkaupastefnu. Nú þurfti hver verslun að standast kröfurnar sjálfstætt, í stað þess að miðað væri við meðaltal keðjunnar í heild.
Á síðustu tveimur árum hefur bein losun gróðurhúsalofttegunda hjá okkur dregist saman um 50 prósent, fyrst og fremst með útskiptum á kælikerfum í verslunum. Sú minnkun jafngildir um 47 þúsund ferðum í kringum Ísland á bensínbíl en kælikerfi teljast einn stærsti einstaki umhverfisþáttur í okkar rekstri.
Á Norðurlöndum er Svansvottunin sterkur gæðastimpill á rekstur fyrirtækja. Vottunin er ekki sjálfgefin heldur krefst skýrra markmiða, mælanlegra aðgerða og stöðugrar umbótavinnu. Við erum því virkilega stolt af árangrinum og munum halda ótrauð áfram að draga úr losun og sóun og vinna að frekari umbótum í rekstrinum.
6. nóvember 2026
Alls hlutu 17 verkefni styrk fyrir fjölbreytt verkefni í nærsamfélagi Krónunnar.
3. nóvember 2026
Nú geta fyrirtæki pantað gjafakassa fyrir sitt starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila.
25. október 2026
Skelfikerið, graskersútskurðarkeppni Krónunnar, var haldið í þriðja sinn um helgina og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Keppendur sýndu mikla hugmyndaauðgi og metnað og úr varð glæsileg graskerssýning í Krónunni Lindum.
21. október 2026
Það verður partí í Krónunni á degi einhleypra og öllum er boðið, hvort sem þau eru í deitleit eða ekki.