Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
1. apríl 2025
Bílalúga mun bætast við þær þjónustulausnir sem Krónan býður upp á því í dag opnar formlega Krónulúgan við verslun Krónunnar í Garðabæ. Lúgunni er ætlað að einfalda líf viðskiptavina enn frekar þar sem nú verði hægt að sækja pantanir úr Snjallverslun eða versla að hámarki tíu vörur og fá afhent í lúgunni. Krónulúgan verður opin allan sólarhringinn, alla daga vikunnar og er því um byltingarkennda þjónustu að ræða þar sem viðskiptavinurinn þarf aldrei að stíga út úr bílnum.
Freyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá Krónunni, segir að fjöldinn allur af viðskiptavinum hafi beðið um þessa þjónustu í gegnum tíðina. Krónan er því spennt að geta loksins kynna þessa byltingarkenndu framtíðarlausn í matvöruverslun fyrir Íslendingum.
„Krónulúgan er frábær kostur fyrir þau sem vilja nýta sér fljótlegar lausnir í amstri dagsins. Verslun okkar á Akrabraut í Garðabæ er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og því hin fullkomna staðsetning fyrir sólarhringsþjónustu sem þessa. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum okkar í flottustu bílalúgu landsins og vonum að sem flest líti við þegar lúgan verður formlega opnuð í dag,“ segir Freyja um Krónulúguna.

Sóley Bjarkadóttir, verslunarstjóri Krónulúgunnar tekur á móti afgreiðslu.
3. nóvember 2026
Nú geta fyrirtæki pantað gjafakassa fyrir sitt starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila.
25. október 2026
Skelfikerið, graskersútskurðarkeppni Krónunnar, var haldið í þriðja sinn um helgina og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Keppendur sýndu mikla hugmyndaauðgi og metnað og úr varð glæsileg graskerssýning í Krónunni Lindum.
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.