© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
15. júní 2026
Krónan í Lindum er opin á ný eftir viðamiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir frá því í apríl. Lindir er stærsta verslun Krónunnar, rúmlega 3.200 fermetrar að stærð.
Ásthildur María Jóhannesdóttir, verslunarstjóri Krónunnar í Lindum, segir að verslunin hafi verið tekin í gegn með það að markmiði að bæta flæði um verslunina, auka sýnileika ferskra og lífrænna vara og bæta verslunarupplifun viðskiptavina.
„Endurbæturnar gera okkur kleift að mæta þörfum viðskiptavina enn betur, hvort sem litið er til vöruúrvals, ferskleika eða aðgengis í versluninni. Við hlökkum mikið til að taka á móti viðskiptavinum á ný og sýna þeim breytingarnar,“ segir Ásthildur og þakkar viðskiptavinum fyrir sýndan skilning á meðan framkvæmdum stóð.
„Meðal þess sem viðskiptavinir munu taka eftir er að sjálfsafgreiðslukössum hefur verið fjölgað úr níu í fimmtán og ný tegund kassa tekin í notkun sem einfaldar og flýtir fyrir afgreiðslu. Lausnin var þróuð innan Krónunnar með það að markmiði að gera afgreiðslu hraðari og notendavænni. Þegar Krónan í Lindum opnaði árið 2008 varð hún fyrsta verslunin hér á landi til að taka upp sjálfsafgreiðslukassa. Nú tekur ný kynslóð sjálfsafgreiðslulausna við sem endurspeglar vel þá þróun sem orðið hefur á verslunarvenjum viðskiptavina á síðustu árum,“ segir Ásthildur.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir að markmiðið hafi ekki aðeins verið að endurnýja verslunina heldur einnig að gera hana umhverfisvænni, aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini og ekki síst starfsfólk.
„Verslunin í Lindum er okkar stærsta verslun og því var mikilvægt að nýta þetta tækifæri til að þróa hana áfram í takt við breyttar þarfir viðskiptavina. Við höfum lagt mikla vinnu í að bæta flæði, styrkja umhverfisvæna þætti rekstrarins og skapa betri aðstöðu fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Við hlökkum til að heyra viðbrögð við breytingunum og sjá verslunina lifna við á ný,“ segir Guðrún.
Við endurbæturnar var sérstök áhersla lögð á umhverfisvænar lausnir og bætta orkunýtingu. Ný LED-lýsing hefur verið sett upp um alla verslun og nýtt CO2-kælikerfi tekið í notkun í stað freons sem stuðlar að bættri orkunýtingu og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.
27. maí 2026
Nú geta viðskiptavinir Krónunnar fengið hjálp við að leita í vöruúrvalinu okkar, fengið tillögur að vörum, yfirlit yfir verð og búið til tillögur að innkaupalista eftir þörfum, allt með hjálp ChatGPT!
13. maí 2026
Viðskiptavinir geta gluggað í stærstu sjálfbærniskýrslu landsins í Krónunni Skeifunni.
11. maí 2026
Snjallspjallið er notaleg fræðslustund fyrir lengra komna byrjendur.