Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
9. nóvember 2026
Við fögnum degi einhleypra í Krónunni! Krónan og Smitten fagna degi einhleypra með partíi í Krónunni Granda. Kvöldið snýst um góða samveru, ný kynni og skemmtilega stemningu, hvort sem þú ert í deitleit eða bara til í gott kvöld. Það er nefnilega ýmislegt sem bendir til þess að matvöruverslunin geti verið meira en bara staðurinn þar sem við kaupum í matinn. Hún er líka hversdagslegt félagslegt rými þar sem fólk hittist, spjallar og kynnist. Og hver veit nema neistinn kvikni einmitt við grænmetiskælinn?
Eva Ruza og Ragga Holm sjá um að halda uppi stemningunni og nóg verður um að vera:
Lukkuhjól með glæsilegum vinningum
Kokteilaskólinn býður upp á girnilega óáfenga kokteila
Smakk og alls konar gúmmelaði
20% afsláttur af vörum frá Glowxie, Chad Grooming, Ice Professional og Azure Tan, sem verða einnig á staðnum og kynna vörurnar sínarHvort sem þú mætir til að kynnast einhverjum nýjum, hitta fólk eða einfaldlega skemmta þér, þá sjáumst við á Granda!
Hér er linkur á Facebook viðburðinn: https://fb.me/e/5ipC3DWMD
3. nóvember 2026
Nú geta fyrirtæki pantað gjafakassa fyrir sitt starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila.
25. október 2026
Skelfikerið, graskersútskurðarkeppni Krónunnar, var haldið í þriðja sinn um helgina og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Keppendur sýndu mikla hugmyndaauðgi og metnað og úr varð glæsileg graskerssýning í Krónunni Lindum.
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.