Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
2. október 2026
Það er veisla í vændum! Dagana 1.–18. október leggjum við áherslu á íslenskt góðgæti, spennandi nýjungar og hráefni úr heimabyggð í völdum Krónuverslunum. Í Íslenskri veislu sameinast tvö skemmtileg samstarfsverkefni, annars vegar með Samtökum smáframleiðenda og hins vegar með Móður Jörð. Markmið samstarfanna er að gefa viðskiptavinum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íslenskum matvælum og styðja við framleiðendur hér heima.
Krónan hefur átt í samstarfi við Samtök smáframleiðenda frá árinu 2020. Með samstarfinu viljum við auka aðgengi að spennandi íslenskum matvörum og skapa smáframleiðendum tækifæri til að stíga sín fyrstu skref inn á matvörumarkaðinn. Líkt og ár hvert má finna fjölbreytt úrval af góðgæti frá íslenskum smáframleiðendum, en meirihluti þátttakenda eru með í fyrsta sinn. Fyrir marga hefur þó samstarfið verið upphafið að stærra ævintýri. Nokkrir framleiðendur sem fengu sitt fyrsta hillupláss þar eru nú með vörur sínar í almennri sölu hjá Krónunni eftir að viðskiptavinir tóku einstaklega vel á móti þeim.
Í Íslenskri veislu má meðal annars finna vörur frá Austurbý, Brákarey, Goðaborg, Hreppamjólk, Hrímu, Isqueeze, Kombucha, Puff Popp, Rabarbíu, Súrum Míum, Sykri og salti, Villt að vestan og Helvítis.
Í Íslenskri veislu kynnum við einnig Móður Jörð, lífrænt ræktunar- og matvælafyrirtæki í Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Móðir Jörð hefur áratuga reynslu af íslenskri lífrænni ræktun og framleiðslu og leggur áherslu á að rækta og vinna hráefni í sátt við náttúruna. Þar er meðal annars stunduð korn- og grænmetisrækt og framleiddar fjölbreyttar lífrænar hollustu- og sælkeravörur. Hér gefst því gott tækifæri til að kynnast íslenskri lífrænni framleiðslu frá Vallanesi og bragða á því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.
23. september 2026
Fyrirkomulagið tekur gildi í dag, á bíllausa deginum.
17. september 2026
Plaustlaus september þýðir ekki að sleppa eigi öllu plasti, heldur að vera meðvitaðari í neyslu; allt frá innkaupum og matreiðslu, til geymslu matvæla og flokkunar.
15. september 2026
Krónan og LBHÍ hafa gert með sér samning til þriggja ára.
14. september 2026
Nú geta viðskiptavinir Krónunnar fengið hjálp við að leita í vöruúrvalinu okkar, fengið tillögur að vörum, yfirlit yfir verð og búið til tillögur að innkaupalista eftir þörfum, í Claude gervigreindarforritinu.