fyrir
4
Eldunartími
30 mín.
Undirbúa
60 mín.
Samtals:
90 mín.
Innihald:
1 sæt kartafla
2 msk grænmetiskraftur (blandað saman við 500ml af soðnu vatni)
1 dós kókosmjólk
1 msk karrý
1/4 tsk papriku krydd
1 msk ólífu olía
2 hvítlauksgeirar
1 laukur
1 dós kjúklingabaunir
1/4 tsk cayanne
Salt
Pipar
Leiðbeiningar
Skerið sæta kartöflu niður í teninga og sjóðið í potti þar til hægt er að stinga gaffli í gegn
Setjið sætkartöfluna því næst í matvinnsluvél ásamt grænmetiskraftinum, kókosmjólkinni og kryddunum
Steikið lauk og hvítlauk upp úr olíu
Bætið kjúklingabaunum við og steikið í smá stund
Bætið sætkartöflu blöndunni út á pönnuna og leyfið suðunni að koma upp
Bætið cayanne pipar við eftir smekk ásamt salti og pipar
Leyfið að malla í 15-30 mínútur
Berið fram með hrísgrjónum, kóríander og naan brauði
Samtals: