fyrir
3
Eldunartími
90 mín.
Undirbúa
30 mín.
Samtals:
120 mín.
Innihald:
Hálfur lambahryggur
3 stilkar rósmarín, ferskt
5 stilkar timían, ferskt
5 hvítlauksgeirar
Salt og pipar, eftir smekk
Olía til steikingar
Leiðbeiningar
Í samstarfi við Gestgjafann
Hitið ofninn í 85°C.
Þerrið hrygginn og skerið rákir fitumegin svo það myndist tíglamynstur en varist að skera í kjötið.
Pönnusteikið fituhlið hryggsins fyrst á heitri pönnu upp úr olíu.
Þegar hryggurinn hefur náð gullinbrúnum lit bætið þá smjöri út í ásamt hvítlauk.
Snúið þá hryggnum við og steikið í u.þ.b. 1 mínútu í viðbót.
Færið lambahrygginn yfir í eldfast mót með fituhliðina upp og leggið ferskt rósmarín og timían á hrygginn ásamt hvítlauksgeirum.
Saltið og piprið eftir smekk og setjið inn í ofn þar til hryggurinn hefur náð allt að 54°C í kjarnhita.
Hvílið kjötið í um 5-10 mínútur áður en þið skerið vöðva hryggsins af beini.
Samtals: