fyrir
4
Uppáhalds
Eldunartími
0 mín.
Undirbúa
30 mín.
Samtals:
30 mín.
Bollur með kaffirjóma og lakkrístoppi
Innihald:
500 ml rjómi
2 dósir af Örnu grísk jógúrt með kaffi- og súkkulaðibragði
Lúka af lakkrísbitum
Súkkulaðiglassúr:
3 dl flórsykur
2 msk bökunarkakó
2 tsk vanilludropar
2 msk kaffi (valkvætt)
3 msk vatn
Leiðbeiningar
1
Þeytið rjómann vel.
2
Bætið við tveimur dósum af Örnu grískri jógúrt með kaffi- og súkkulaðibragði ásamt lakkrísbitum og hrærið saman við rjómann með sleif.
3
Gott er að kæla rjómann aðeins svo hann leki síður til.
4
Toppað með súkkulaðiglassúr.
Súkkulaðiglassúr
1
Setjið öll hráefnin saman í skál og pískið saman.
2
Smyrjið á bollurnar með skeið/litlum spaða
Vörur í uppskrift
Mælum með
Samtals:
2.336 kr.