Viðskiptavinir Krónunnar söfnuðu 4,5 milljónum fyrir Grindvíkinga

23. febrúar 2024

Viðskiptavinir Krónunnar söfnuðu 4,5 milljónum fyrir Grindvíkinga

Alls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar 4,5 milljónum króna í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi þar sem markmiðið er að safna fé fyrir íbúa Grindavíkur.

Upphæðin mun renna óskert í söfnun Rauða krossins til að styðja fjárhagslega við íbúa Grindavíkur í kjölfar eldsumbrota á svæðinu. Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum Krónunnar að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín þegar verslað var á sjálfsafgreiðslukössum verslana um allt land yfir tveggja vikna tímabil.

„Framlag Krónunnar og viðskiptavina hennar er mjög mikilvægt og sýnir breiðan stuðning í samfélaginu við neyðarsöfnun Rauða krossins, Grindvíkingum til handa,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segist ánægð með að geta nýtt lausnir innan verslana til að aðstoða þá viðskiptavini sem vilja leggja sitt af mörkum og styðja bæjarbúa á erfiðum óvissutímum. „Krónan hefur átt í góðu samstarfi við Rauða krossinn í gegnum árin og er ánægjulegt að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar með því að leggja neyðarsöfnuninni lið með þessum hætti. Söfnuninni í verslunum Krónunnar var ætlað að koma til móts við öll þau sem vildu veita bæjarbúum stuðning og sýnir árangurinn bersýnilega hve auðvelt er að virkja samtakamáttinn meðal landsmanna á ögurstundu sem þessari,“ segir Guðrún.

Öllu fé sem safnast í neyðarsöfnuninni verður úthlutað til Grindvíkinga í gegnum úthlutunarnefnd, að undanskildum kostnaði við úthlutunina sjálfa. Úthlutunarnefndin samanstendur af fulltrúum Rauða krossins, félagsþjónustu Grindavíkurbæjar og kirkjunnar í Grindavík. Hægt er að sækja um fjárstuðning í þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu við Tryggvagötu.

Mynd (frá vinstri): Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

24. apríl 2024

Moldamín, ruslfæði fyrir plönturnar þínar

Melta, fyrirtæki sem sérhæfir sig í hringrásarlausnum, hóf samstarf með Krónunni og Brandenburg á Hönnunarmars þar sem hönnunarvaran Moldamín var kynnt til leiks....

22. apríl 2024

Krónan býður í strætó í tilefni af degi jarðar!

Gegn framvísun fjölnota pokans fá öll frítt í strætó.

8. febrúar 2024

Kínversk áramót í Krónunni!

Ár Drekans hefst á laugardaginn og Krónan býður upp á ávexti sem sjást vanalega við veisluhöld.

5. febrúar 2024

Neyðarsöfnun fyrir Grindavík á sjálfsafgreiðslukössum Krónunnar

Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna eldgossins við Grindavík en afrakstur hennar verður nýttur til að styðja Grindvíkinga fjárhagslega.

19. janúar 2024

Ánægðustu viðskiptavinirnir - sjöunda árið í röð!

Viðskiptavinir Krónunnar eru þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar.

10. janúar 2024

Krónan eykur þjónustu á Norðurlandi eystra

Húsvíkingar og fleiri íbúar á Norðurlandi geta nú pantað matinn heim í Snjallverslun Krónunnar.

28. desember 2023

Innköllun á Bowl & Basket Jalapeno Everything Bagel Seasoning

Krónan hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, innkallað eftirfarandi matvöru

20. desember 2023

600 fjölskyldur fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin

15. desember 2023

Krónan gefur leikskólanum Rauðhól bambahús

6. desember 2023

Afhverju er e.l.f. svona vinsælt?

1. desember 2023

Nýtt samstarf með Hrefnu Sætran

27. nóvember 2023

Styrkjum saman gott málefni í þínu nærumhverfi fyrir jólin

21. nóvember 2023

Umbúðalausar lausnir í Evrópsku nýtnivikunni

26. október 2023

Gleðilega umhverfisvæna Hrekkjavöku!

29. september 2023

29. sept. er Alþjóðlegi dagurinn gegn matarsóun!

26. september 2023

Magnaðar móttökur á Grandanum

11. september 2023

Krúttlegasta Krónumótið haldið í fimmta sinn

1. september 2023

Matarbúrið hefst 2. september!

25. ágúst 2023

Bændamarkaður Krónunnar næstu helgar!

9. ágúst 2023

Krónan fagnar fjölbreytileikanum með öllum litum regnbogans!

8. ágúst 2023

Glæsileg verslun Krónunnar á Granda opnar um miðjan september

17. maí 2023

Taupokar eignast framhaldslíf

27. apríl 2023

Plokkum saman sunnudaginn 30. apríl

26. apríl 2023

Leiksýningin Aspas í Krónunni Granda

3. apríl 2023

Frá skólaverkefni yfir í svaladrykk

1. apríl 2023

Fyrsta grænmetis páskaeggið

31. mars 2023

Áframhaldandi samstarf Breiðabliks og Krónunnar 

29. mars 2023

Krónan færði hælisleitum páskaegg

22. mars 2023

Samfélagsskýrsla Krónunnar 2022 komin út

8. febrúar 2023

Krónan valin Besta íslenska vörumerkið 2022

13. janúar 2023

Krónuvinir þeir ánægðustu - sjötta árið í röð

13. janúar 2023

Prime er komið aftur - UPPSELT!

21. desember 2022

Rúmlega 450 fjölskyldur fá matarúttekt fyrir jólin frá Krónunni

21. desember 2022

Stærsti leynivinaleikur Íslandssögunnar

1. desember 2022

Krónan opnar nýja verslun á Akureyri

30. nóvember 2022

Krónan hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2022

21. nóvember 2022

Krónan opnar Þurrvörubar í Skeifunni

17. nóvember 2022

Stórglæsilegar breytingar í Mosfellsbæ

14. nóvember 2022

Innköllun á Grön Balance sólblómafræjum

24. október 2022

Krónan tilnefnd til Fjöreggsins

12. október 2022

Krónan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2022

12. september 2022

Krúttlegasta hjólakeppni landsins var haldin um helgina

24. ágúst 2022

Krónan frystir vöruverð á 240 vörum til að berjast gegn verðbólgunni

8. júlí 2022

Ný og glæsileg verslun í Skeifunni

28. apríl 2022

15 milljónir til Úkraínu

31. mars 2022

Ávexti og grænmeti á stykkjaverði

24. janúar 2022

Takk – fimmta árið í röð

29. október 2021

7 milljónir í samfélagsstyrki

29. janúar 2021

Takk Krónu vinir

Krónu karfan

© 2024

-

Krónan

-

Kt. 711298 2239

-

Skrifstofa Krónunnar

-

Sími: 585 7000

-

Dalvegur 10-14

-

201 Kópavogur